Vefsíðan okkar Hagsmunir.is hefur nú legið niðri í talsverðan tíma. Ástæðan er sú að einhverjir tölvuþrjótar sáu þörf fyrir það að brjóta sér leið inn í umsjónarkerfi síðunnar og gera það að verkum að hýsingaraðili hennar þurfti að loka henni vegna mikils álags á server sem hýsir síðuna ásamt öðrum vefsíðum. Þetta gerði það að verkum að við þurftum að flytja hýsinguna annað og byggja hana frá grunni.