
RÚV: Vilja ekki vindorkuver á Hróðnýjarstöðum
June 10, 2020Fjársterkir aðilar nýta sér smæð sveitarfélaga
June 21, 2020Sveitarstjórn Dalabyggðar leggur til fordæmalausar skipulagsbreytingar án þess að taka tillit til mótmæla íbúa og hagsmunaaðila
Sveitarstjórn Dalabyggðar breytir landbúnaðarjörðum í iðnaðarsvæði til þess að þar megi byggja vindorkuvirkjanir. Skipulagsbreytingar sem þessar eiga sér engin fordæmi á Íslandi en munu verða fordæmisgefandi í framtíðinni.
Nágrannar eru mjög ósáttir og hafa frá því síðla árs 2017 mótmælt harðlega á fundum með sveitarstjórn ásamt því að hafa sent mörg bréf með mótmælum og athugasemdum við þessa fyrirætlan.
Sveitarstjórn hunsar mótmæli íbúa og hagsmunaaðila og gerir lítið úr mótmælunum í stað þess að verja hagsmuni þeirra eins og þeim ber lagaleg skylda til.

