Óumbeðin barátta frá 1. ágúst 2017 Dalabyggð · Hagsmunir íbúa og náttúru
Valmynd
← Tímalína

19. september 2017

151.fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar

Merki Dalabyggðar

Úr fundargerð:
7.Vilja-og samstarfsyfirlýsing – 1708001 frá fyrra fundi.

Fyrirtækið Storm orka ehf áformar að koma upp vindorkugarði í landi Hróðnýjarstaða í Dalabyggð ef tilskilin leyfi fást og hefur óskað eftir samstarfi við Dalabyggð varðandi skipulagsmál o.fl. Fyrir liggja drög að vilja- og samstarfsyfirlýsingu.

Sveitarstjórn óskaði umsagnar umhverfis- og skipulagsnefndar. Nefndi taldi erfitt að taka afstöðu til verkefnisins, þar sem gögn vantar, svo sem afstöðumynd, stærð og fjölda vindmylla og flatarmál vindorkugarðsins.

Magnús B. Jóhannsson framkvæmdastjóri Storm Orku ehf, fundaði með sveitarstjórnarmönnum fyrr í dag og skýrði áform fyrirtækisins.

Lagt til að sveitarstjórn samþykki vilja- og samstarfsyfirlýsinguna. Samþykkt með sex atkvæðum. Einn situr hjá (HSS).
Gert er ráð fyrir að Íbúafundur verði haldinn á næstu vikum þar sem þetta verður kynnt ásamt fleiru.

ATH. Hér samþykkir sveitarstjórn viljayfirlýsingu þrátt fyrir að umhverfis- og skipulagsnefnd hafi vísað málinu frá vegna skorts á upplýsingum.

Fundargerðin í heild sinni: http://www.dalir.is/stjornsysla/fundargerdir/nr/19498/

Upprunaleg færsla eða fylgiskjal í Vefsafni. Atburðardagur samkvæmt tímalínu Hagsmunir.is í safnútgáfu frá 24. júní 2023.

Skoða upprunalega heimild