Hvers vegna hagsmunir.is?

Vefurinn Hagsmunir.is er stofnaður af hópi fólks sem er mótfallinn ákvörðun Dalabyggðar um að skipuleggja iðnaðarsvæði fyrir vindorkuvirkjanir á tveimur landbúnaðarjörðum í Dölum. Er þar meðal annars um að ræða eigendur jarðanna Ljárskóga, Glerárskóga, Ljárkots og Vígholtsstaða ásamt frístundajarða í landi Vígholtsstaða. Hópurinn telur sveitarstjórn Dalabyggðar ekki hafa staðið rétt að málum í upphafi þessa máls, ekki hafa mótað sér stefnu varðandi virkjun vindorku í sveitinni og ekki taka tillit til mótmæla nágranna. Málið er fodæmalaust þegar kemur að stærð og umfangi og telur hópurinn það vafa undirorpið hver hagur sveitarfélagsins yrði af slíkri framkvæmd. Hópurinn hefur ítrekað farið þess á leit við sveitarstjórn að hætta við þessi áform enda muni þau hafa varanleg neikvæð áhrif á sveitina og samfélagið. Þeir sem vilja slást í hópinn, skrifa á síðuna eða hafa einhverjar fyrirspurnir til hópsins geta sent tölvupóst í netfangið [email protected]


Land míns föður, landið mitt

laugað bláum straumi
eilíft vakir auglit þitt
ofar tímans glaumi. 

 

Jóhannes úr Kötlum

FRÉTTIR TENGDAR MÁLINU

June 23, 2020

Vanhæfi sveitarstjórnar

Vanhæfi sveitarstjórnar – persónukjör í litlum samfélögum Algjört vanhæfi núverandi sveitarstjórnar kemur m.a. fram í því að þau tjá sig ekki um þetta mál, ef undan […]
June 21, 2020

Dalabyggð hunsar tilmæli

Dalabyggð hunsar tilmæli ríkisstjórnarinnar og skapar fordæmi í skipulagsmálum sem erfitt verður að vinda ofanaf Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar kemur fram að „setja þarf lög um vindorkuver […]
June 21, 2020

Fordæmalausar skipulagsbreytingar

Sveitarstjórn Dalabyggðar leggur til fordæmalausar skipulagsbreytingar án þess að taka tillit til mótmæla íbúa og hagsmunaaðila Sveitarstjórn Dalabyggðar breytir landbúnaðarjörðum í iðnaðarsvæði til þess að þar […]