Tímalína

2022
Vindorkufyrirtæki með fund í Dalabúð
Vindorkufyrirtæki með fund í Dalabúð

EM Orka, Qair, Zephyr, Grjótháls og Norðurál boðuðu til fundar í Dalabúð. Forsvarsfólk Landverndar mætti á fundinn og dreifðu upplýsandi bæklingi um staðreyndir vindorku. Fór dreifing Landverndar á umræddum einblöðungi fyrir brjóstið á forsvarsmönnum vindorkufyrirtækja og sagði Tryggvi Þór Herbertsson Landvernd stunda áróður og fara með ósannindi. Þess ber að…
Lesa nánar

Aðalskipulag vegna vindorkuvers í landi Hróðnýjarstaða og Sólheima staðfest af Skipulagsstofnun
Aðalskipulag vegna vindorkuvers í landi Hróðnýjarstaða og Sólheima staðfest af Skipulagsstofnun

Í fréttum sem birtust á vef Skipulagsstofnunar þann 29.júní 2022 kemur fram að stofnunin staðfesti breytingu á aðalskipulagi Dalabyggðar fyrir vindorkuver í landi Hróðnýjarstaða og Sólheima. Einhver U beygja virðist hafa komið í málið en ekki er lengra síðan en 5.apríl 2022 þegar Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra synjaði staðfestingu aðalskipulagsbreytinga…
Lesa nánar

Innviðaráðherra synjar staðfestingu aðalskipulagsbreytinga um vindorkuver í Dalabyggð og Reykhólahreppi
Innviðaráðherra synjar staðfestingu aðalskipulagsbreytinga um vindorkuver í Dalabyggð og Reykhólahreppi

Í frétt sem birtist þann 27.apríl 2022 kemur fram að Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hafi synjað staðfestingu aðalskipulagsbreytinga um vindorkuver í Reykhólahreppi og Dalabyggð. Fréttina má lesa í heild sinni á vef Skipulagsstofnunar.

2021
Skipulagsstofnun telur að synja eigi staðfestingu aðalskipulagsbreytinga
Skipulagsstofnun telur að synja eigi staðfestingu aðalskipulagsbreytinga

Í svarbréfi frá Skipulagsstofnun þann 28.desember 2021 vegna beiðni Dalabyggðar um staðfestingu á breytingu á Aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna iðnaðarsvæða í landi Hrjóðnýjarstaða og í Sólheimum vegna fyrirhugaðra vindorkuverka varð niðurstaðan eftirfarandi. Niðurlag bréfs Skipulagsstofnunar: …Skipulagsstofnun telur að synja beri staðfestingu aðalskipulagsbreytinganna þar sem efni og framsetning þeirra samræmist ekki lögum…
Lesa nánar

2017
76.fundur umhverfis og skipulagsnefndar

Úr fundargerð: 4.Vilja- og samstarfsyfirlýsing – 1708001 Fyrirtækið Storm orka ehf áformar að koma upp vindorkugarði í landi Hróðnýjarstaða í Dalabyggð ef tilskilin leyfi fást og hefur óskað eftir samstarfi við Dalabyggð varðandi skipulagsmál o.fl. Fyrir liggja drög að vilja- og samstarfsyfirlýsingu. Sveitarstjórn fjallaði um erindið á 150.fundi og tók jákvætt…
Lesa nánar

Vilja og samstarfsyfirlýsing Dalabyggðar
Vilja og samstarfsyfirlýsing Dalabyggðar

150. fundur sveitarstjórnar Dalabyggðar. Úr fundargerð: 1.Vilja- og samstarfsyfirlýsing – 1708001 Fyrirtækið Storm orka ehf áformar að koma upp vindorkugarði í landi Hróðnýjarstaða í Dalabyggð ef tilskilin leyfi fást og hefur óskað eftir samstarfi við Dalabyggð varðandi skipulagsmál o.fl. Fyrir liggja drög að vilja- og samstarfsyfirlýsingu. Sveitarstjórn tekur jákvætt í…
Lesa nánar

Jörðin Hróðnýjarstaðir seld til Stormorku
Jörðin Hróðnýjarstaðir seld til Stormorku

Jörðin Hróðnýjarstaðir seld til Magnúsar B. Jóhannessonar, Sigurðar Eyberg Jóhannessonar og Jóhannesar föður þeirra.