Skipulagsfulltrúa Dalabyggðar falið að útfæra kynningarfund
08/05/2020
Vilja ekki vindorkuver á Hróðnýjarstöðum
10/06/2020
14/05/2020 skrifað af Sigurður Sigurbjörnsson

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða úr fundargerð 104

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tillögu umhverfis- og skipulagsnefndar.

Sjá úr fundargerð:

5. 2003042 – Hróðnýjarstaðir – breyting á aðalskipulagi vegna vindlundar
Úr fundargerð 104. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar 08.05.2020, dagskrárliður 5:
2003042 – Hróðnýjarstaðir – breyting á aðalskipulagi vegna vindlundar
Fyrir liggur tillaga að breytingu á aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016. Breytingin varðar skilgreiningu iðnaðarsvæðis vegna uppbyggingar vindlundar til raforkuframleiðslu í landi Hróðnýjarstaða.
Nefndin felur skipulagsfulltrúa að útfæra fyrirkomulag fyrirhugaðs kynningarfundar vegna aðalskipulagsbreytingar í landi Hróðnýjarstaða í samráði við framkvæmdaraðila og verkfræðistofuna Eflu. Vegna þeirra aðstæðna sem nú ríkir í þjóðfélaginu, þar sem m.a. er í gildi samkomubann fyrir fleiri en 50 manns, er ljóst að kynningarformið verður ekki með hefðbundnum hætti. Lögð er áhersla á að fyrirhuguð kynning verði sem fyrst.
Tillaga umhverfis- og skipulagsnefndar samþykkt samhljóða.
7358-003-ASK-005-V01 Hróðnýjarstaðir vindorkugarður askbr.pdf

 

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða úr fundargerð 104
This website uses cookies to improve your experience. By using this website you agree to our Data Protection Policy.
Nánar