Sjá úr fundargerð Dalabyggðar:
19. 1805012 – Hróðnýjarstaðir – Umsókn um uppsetningu á 3 möstrum |
Frá 82. fundi umhverfis- og skipulagsnefndar. Storm Orka ehf sækir um leyfi fyrir uppsetningu á þremur 100 metra háum stálgrindarmöstrum til vindmælinga í landi Hróðnýjarstaða. Nefndin leggur til að afgreiðslu umsóknar verði frestað þangað til skýrsla EFLU, um nýtingu vindorku í sveitarfélaginu, liggur fyrir. |
Til máls tóku: Sveinn, Valdís, Eyþór. Greinargerð: Gera má ráð fyrir að tilvitnuð skýrsla Eflu liggi fyrir lok júnímánaðar. Verði þá farið að fjalla um leyfi fyrir uppsetningu á rannsóknarmöstrum er ólíklegt að hægt verði að koma þeim upp á þessu ári þó leyfi fáist. Þá tapast heilt ár í öflun rannsóknargagna sem geta nýst við endanlega ákvörðun sveitarstjórnar um hvort leyfa beri vindmyllugarð eða ekki. Tillaga: Sveitarstjórn vísar málinu aftur til afgreiðslu byggingarfulltrúa. Samþykkt með 6 atkvæðum. Einn situr hjá (VG). |