Ný sveitarstjórn – 163.fundur – Stöðuleyfi samþykkt

Óskað eftir frekari svörum frá byggingafulltrúa Dalabyggðar
12/06/2018
Sendur ítrekunarpóstur á byggingafulltrúa
13/07/2018
12/07/2018 skrifað af Sigurður Sigurbjörnsson

Ný sveitarstjórn – 163.fundur – Stöðuleyfi samþykkt

Nýkjörin sveitarstjórn Dalabyggðar heldur 163 fund sveitarstjórnar.

Þrettánda mál á dagskrá var meðal annars umsókn Storm Orku um uppsetningu á 3 rannsóknarmöstrum:

13. 1806004F – Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar – 83
Fyrr á fundinum höfum við afgreitt tvö mál sem voru til umfjöllunar á 83. fundi Umhverfis- og skipulagsnefndar varðandi stöðu skipulags í sveitarfélaginu og skógræktaráform í Ólafsdal. Önnur mál sem voru til umfjöllunar á fundinum snerust um breytingar á aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016 varðandi auglýsingu á deiluskipulagi við Borgarbraut og Gildurbrekkur. Eins var umsókn um byggingu ferðaþjónusthúss á Björgum og umsögn um rekstur ferðaþjónustu í Þurranesi. Eins var til umfjöllunar umsókn Storm orku ehf. um uppsetningu á þremur mösturm til vindmælinga.
Til máls tóku: Einar Jón, Ragnheiður, Skúli Hreinn og Eyjólfur.Einar Jón kom með eftirfarandi tillögu: Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkir að veita Storm orku ehf., stöðuleyfi til að reisa 3 rannsóknarmöstur á landi Hróðnýjarstaða.
Leyfið er veitt til tveggja ára. Nákvæm kort með staðsetningum vegslóða og staðsetningum mastra þarf að leggja fyrir byggingafulltrúa áður en ráðist er í framkvæmdir.Tillaga Einars Jóns lögð fram til samþykktar.

Til máls tóku: Ragnheiður, Skúli Hreinn, Eyjólfur og Einar.

Tillagan lögð fram til samþykktar.
Atkvæðin féllu þannig 4 samþykktir, 3 á móti (EIB, ÞJS, RP)

Oddviti leggur til að fundargerðin verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða

 

Skoða fundargerð: https://dalir.is/stjornsysla/nefndir-stjornir-ofl/fundargerd/fundur/?id=156366465582432010711&text=

Ný sveitarstjórn – 163.fundur – Stöðuleyfi samþykkt
This website uses cookies to improve your experience. By using this website you agree to our Data Protection Policy.
Nánar