Óumbeðin barátta frá 1. ágúst 2017 Dalabyggð · Hagsmunir íbúa og náttúru
Valmynd

Um okkur

Hagsmunir.is

Vefurinn Hagsmunir.is er stofnaður af hópi fólks sem hefur hagsmuna að gæta vegna áforma fyrirtækisins Storm Orku ehf. um uppbyggingu vindorkuvers í landi Hróðnýjarstaða í Dalabyggð. Í hópnum eru meðal annars eigendur jarðanna Ljárskóga, Ljárkots og Vígholtsstaða, ásamt eigendum frístundajarða í landi Vígholtsstaða. Hópurinn hefur einnig haft veður af því að fleiri fjárfestar hyggi á virkjun vindorku í Dölum og vill beita sér fyrir því að rétt sé staðið að stjórnun og skipulagi þessara mála.

Hópurinn telur starfandi sveitarstjórn Dalabyggðar ekki hafa staðið rétt að málum í upphafi þessa máls. Málið er fordæmalaust hvað stærð og umfang varðar. Hópurinn telur að vanda þurfi sérstaklega til verka og gæta í hvívetna að hagsmunum allra sem að málinu koma. Hann hefur því lagt til við sveitarstjórn að málið verði sett í bið þar til stjórnvöld hafa sett lög og reglur sem snúa að vindorkuverum og virkjun vindorku á Íslandi.

Þeir sem vilja slást í hópinn, skrifa á síðuna eða hafa einhverjar fyrirspurnir til hópsins geta sent tölvupóst á netfangið hagsmunir@hagsmunir.is.

18. maí 2018